Næst bjánalegasta hugmynd í íslenskri pólitík hefur látið á sér kræla eftir hálfs árs þögn og gefur út blað sem er titlað eftir heimskulegasta hluta kenninga Adam Smiths. Glæsilegt afrek. Blaði nær að vera ein A4 síða, BÆÐI FRAMAN OG AFTAN Á! Þetta er svona svipað mikið efni og ég kem frá mér á örfáum dögum á dagbókinni minni en bara ekki jafn skemmtilegt aflestrar (þú lesandi góður hlítur að vera sammála því annars værirðu ekki að lesa mig).
Blaðið ber ferskar fréttir frá Costa Rica þar sem einhver frjálshyggjumaður segir að skattalækkunarhugmyndir séu vinsælar meðal almennings. Einnig benda þeir á að Jakob Frímann hafi sagt eitthvað heimskulegt (þó ég sé reyndar ekki 100% ósammála því sem hann sagði í þessu tilfelli). Einn náungi er hræddur um að íslenska þjóðin sé „ofmenntuð“ og ég sé að vissulega væri hægt að bjarga því með því að koma í veg fyrir menntun fátækra. Að mínu viti er meira vandamál hve ofheilbrigð þjóðin er sem veldur hækkandi meðalaldri, það væri líka hægt að koma í veg fyrir það með því að gera heilsugæslu að munaðarvöru.
Síðan er auglýst videokvöld á Kringlukránni sem mér þykir einkar heppileg staðsetning, þeir þurfa einfaldlega að fara yfir götuna.
