Það er langt síðan að ég rak mig fyrst á þá staðreynd að það eru ótal fífl sem ganga hér um í lögreglubúningum. Ég hef séð þetta ótal sinnum á friðsamlegum mótmælum þar sem þessir valdabrjálæðingar fá útrás fyrir skítlegt eðli sitt. Þessum aulahóp hefur oftast verið stjórnað af fávita sem heldur að ástandið í miðbænum stjórnist ekki af innri aðstæðum samfélagsins heldur gangi himintungla.
Já, ég er reiður.
Það er óásættanlegt að menn séu handteknir á skjön við landslög til að koma í veg fyrir lýðræðislegan rétt sinn til að tjá andúð sína á stjórnvöldum. Ef hann hefði verið að brjóta af sér hefði augljóslega mátt handtaka hann en svo var ekki. Ef hann braut einhver lög þegar hann flaggaði grísnum á svínahöllinni hefði átt að handtaka hann og kæra formlega. En það að taka hann á upptrommuðum ástæðum er óásættanlegt. Ég skammast mín fyrir að hafa ekki komið mér niðrí bæ og reynt að frelsa hann. Þegar lögreglan bregst á fólkið að taka valdið í sínar hendur.
Lögreglumenn voru réttnefndir af Helga Hóseassyni. Þeir eru þrælar valdsins.
Ég krefst rannsóknar á þessu máli og ég krefst þess að þeir sem ákváðu að svipta Hauk Hilmarsson frelsi sínu þvert á lög sæti refsingu.
Uppfært 18:24
Eftir að ég hafði hellt úr skálum reiði minnar kemur frétt um að Hauk hafi verið sleppt. Einhver borgaði fyrir hann. Mig grunar að þar hafi ekki verið einhver úr hópi mótmælenda á ferð.