Agnes Bragadóttir vill að ríkisstjórnin fái frið. Sama segir einhver danskur sérfræðingur sem Mogginn dró upp. Við erum að horfa of mikið á vandamálin ekki lausnir. Voðalega er Morgunblaðið fyrirsjáanlegt. Það hefur verið mikið um líkingamál undanfarið. Skipstjórar, slökkvilið og svo framvegis. Höfum þetta einfalt. Bjálfarnir sem eyðilögðu allt með fyrirhyggjuleysi og blindri heimskulegri hugmyndafræði eru ennþá við völd og það er stærsta vandamál augnabliksins. Siðlausu tækifærissinnarnir sem notuðu sér bjálfalega stefnu bjálfana eru nú að reyna að græða á bjálfalegum björgunaraðgerðum bjálfana. Þetta er næststærsta vandamálið.
Nenni þessu ekki, ég er böggaður.