Hvítsúkkulaðibitakökur

Ég bakaði smákökur áðan. Ég notaði uppskrift héðan. Munurinn er að ég setti hvítt súkkulaði í stað venjulegs súkkulaðis. Það kom voðalega vel út og var mjög fljótgert. Ég held að það sé betra að hafa tímann nær 10 mínútum en 12 og legg áherslu á að það þarf að hafa töluvert bil á milli á plötunni.