Spunavélar Sjálfstæðisflokksins eru á fullu. Nú á að skýra það hvers vegna Björg Thorarensen hafi ekki orðið dómsmálaráðherra. Spunavefirnir AMX og Viðskiptablaðið hafa skýringar á þessu.
Af því varð ekki og er ástæðan einföld, hún þykir ekki hafa réttar skoðanir á Evrópusambandinu.
Þegar til átti að taka gátu Vinstri grænir ekki sætt sig við Björgu og settu það helst fyrir sig að hún væri of hægri sinnuð.
Þetta eru ekki beinlínis samhljóða skýringar hjá spunadoktorunum. Ætli við getum ekki séð út úr þessu að AMX er verr við Samfylkinguna og vill sparka í þá átt á meðan Viðskiptablaðinu er meira í nöp við VG og vill skjóta í þá átt.
Sjálfur get ég ekki séð að það þurfi nokkra skýringu við. Tilboð til forseta Lagadeildar um að henda frá sér öllu til að stökkva í ríkisstjórn í þrjá mánuði var bara ekkert sérstaklega heillandi. Gæti ekki verið að hún hafi bara sjálf afþakkað? En ég veit svo sem ekkert. Kannski að ég spyrji hana næst þegar ég hitti hana.
Sjálfur er ég raunar bömmeraður enda hefði verið gott að fá sérfræðing í stjórnsýslu og mannréttindum til að taka til, sama hvort hún sé til hægri eða vinstri og hvað sem manni finnst um ESB.
