Goðheimafyrirlestur

Ég var á fyrirlestri um Goðheima áðan, illa farið með gott efni fannst mér. Fyrirlesturinn var illa settur upp, endurtekningarsamur og fyrirlesarinn gat eiginlega ekkert svarað þeim spurningum sem komu. Mér fannst sérstaklega lélegt hjá henni að vera með handskrifaða glæru. Áhugaverðasti punkturinn kom frá konu sem hefur greinilega verið að skoða þetta og ég held að fyrirlestur frá henni hefði verið mun skemmtilegri. Ekki alger tímasóun þó. Mér fannst annars skrýtið að eiginlega enginn af þeim sem ég veit að hafa gaman af þessum bókum var þarna.

Mér finnst að það ætti að gefa út allar þessar bækur á íslensku, þær verða víst á endanum 14. Menntamálaráðuneytið ætti að niðurgreiða þetta og nota að einhverju leyti við kennslu.

One thought on “Goðheimafyrirlestur”

  1. Nuðaðu bara í dönskukennaranum systur þinni um að þýða þetta! Ég er viss um að einhverjir mundu þá fást til að gefa þetta út

Lokað er á athugasemdir.