Ég var að horfa á Kastljósið í gærkvöldi, þar var Steingrímur Joð að leyfa Sigmari að ráðast á sig. Steingrímur kom mjög vel útúr þessu. Það væri áhugavert að sjá hvort einhver annars stjórnmálaleiðtogi kæmi svona vel útúr jafn fjandsamlegum viðtölum. Það var töluvert rætt um heilbrigðiskerfið og mér fannst Steingrímur koma mér sérstaklega góðan punkt þegar hann benti á að dýrustu hlutar kerfisins væru þeir sem markaðurinn kæmi mest að.
Á meðan ég var að horfa á þetta datt mér í samtal sem ég átti einu sinni við sölumann hjá lyfjafyrirtæki. Ég spurði hann út í gjafir til lækna og síðan í kjölfarið um það þegar heimilislæknirinn minn gamli gagnrýndi það þegar hann fékk rauðvínsflösku gefins. Þessi sölumaður sagði að flestir í bransanum hefðu þegar vitað að Pétur Pétursson myndi ekki þiggja svona gjafir. Honum fannst Pétur samt gera mikið úr þessu þar sem það væri nú ekkert mikið að gefa rauðvínsflösku í þessu bransa, hann sagði síðan eitthvað á þá leið að það væri bara eitthvað að Pétri lækni.
Lyfjafyrirtækin gefa læknum ótrúlega mikið, enginn veit hve mikið en ég veit hver borgar þetta að lokum, skattgreiðendur. Kostnaðurinn við gjafir til lækna fer að sjálfssögðu beint út í lyfjaverðið. Þetta er ótrúlega siðlaus bransi og þetta er markaðsvæddasti hluti heilbrigðiskerfisins. Viljum við að þetta breiðist út um heilbrigðiskerfið?
