Mér sýnist langt seilst með því að ætla að atkvæði sem voru greidd með því að þingið sendi IceSave frumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslu sé hægt að telja sem stuðning fyrir því að forsetinn synji því og sendi það þannig í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stærsta vafamálið í því er að sjálfsögðu sá að fjölmargir þingmenn, aðallega Sjálfstæðisflokksins, eru á því að forsetinn hafi þetta vald yfirhöfuð ekki. Það væri því öfugsnúið að ætla að þeir vilji að forsetinn færi þá leið.
