Ég var að skoða greinar eftir Hrafnkel Lárusson á Hugsandi leitandi að því sem hann hafði eitt sinn skrifað til varnar heimspekingi á Akureyri. Það var minna en mig minnti en ég rakst hins vegar á grein sem heitir Afrekin „Okkar“!. Niðurlag þeirrar greinar er áhugavert miðað við að hún var skrifuð fyrir fjórum árum:
„Við“ munum halda áfram að fagna meintum sigrum „Okkar“ — þar til veruleikinn kippir okkur niður á jörðina þegar við fáum reikninginn fyrir áhorfið.
Endilega kíkið á hana. Það er talað um útrásarvíkinga, handbolta og þjóðrembu.