Færeyjingarnir freista

Ég var að fá gefins færeyskt dagatal með myndum af ýmsum byggðarlögum þar, það á greinilega að lokka mann til Færeyja. Mig langar vissulega að skreppa þangað en einsog er þá höfum við annað ferðalag planað í vor ef fjárhagsáætlanir ganga eftir. Ég vona hins vegar að Færeyjingarnir snúi aftur í sumar, ég hvatti þá óspart til þess, benti þeim á að nágrenni Reykjavíkur (Gullfoss-Geysir-Þingvellir) væri nauðaómerkilegt miðað við til að mynda Mývatnssveitina (sem er jú æði samkvæmt hræðilegu lagi með Hljómum).