Mín fáfræði eða þín?

Í gær sá ég mynd á Flick My Life (sem mér þykir skemmtilegur vefur). Sá sem sendi myndina inn (og sá sem samþykkti hana) hélt greinilega að sá sem bjó til PACE fánann sem sést þar væri að misrita orðið Peace. Ég man eftir að hafa séð þennan fána á Gay Pride en gerði einfaldlega ráð fyrir að ég þekkti ekki tungumálið sem um ræddi. Ég gúgglaði þetta núna, fann upplýsingar á Wikipediu og útbjó myndina sem er hér til vinstri. Ég sendi hana svo aftur á Flick My Life (með athugasemd um að það væru til fleiri tungumál en íslenska og enska) og við sjáum til hvort þeir birti hana.

Þegar maður sér eitthvað sem manni sýnist vera rangt þá er ágætt að gera ráð fyrir þeim möguleika að fáfræðin sé manns eigin. Nú á tímum er tiltölulega auðvelt að nálgast upplýsingar þannig að þetta þarf ekki mikið þrek.

Ég veit vel að sumir telja það ókost minn að ég „vilji alltaf hafa rétt fyrir“ mér en andúð mín á því að hafa rangt fyrir mér veldur því að ég reyni yfirleitt afla mér upplýsinga áður en ég tjái mig. Það hefur ótal sinnum orðið til þess að ég hef komist hjá því að gera mig að fífli. Síðan hefur það líka komið fyrir alltof oft að ég hef gleymt þessu prinsippi og gert mig að fífli.