Ungir Vinstri Grænir birta dagskrá hjá róttæklingum sem eru að sýna áhugaverðar myndir í tjaldi við tjörnina. Ég ætla svo sannarlega að skreppa og vona að þið gerið það líka. Reyndar ætlaði ég ekki að minnast á þetta því mér finnst allir hafa minnst á þetta en síðan fattaði ég að lesendur mínir (hverjir sem þið nú eruð) skoða kannski ekki nákvæmlega sömu síður og ég.
Day: 21. ágúst, 2003
Hver var þá drepinn?
Jæja, þá eru þeir búnir að ná Eiturefna Ali sem kom mér verulega á óvart þar sem þeir voru búnir að drepa hann fyrir þónokkru síðan. Þeir sprengdu alla vega hús hans og nágranna hans (þar af leiðandi nágrannana líka). Gátu þeir ekki athugað hvort hann væri heima?
Smart bombs, dumb people.
Davíð við háborðið
Eygló er/var að lesa ævisögu Davíðs Oddssonar. Í þessari bók eru lýsingar á því þegar hann var formaður nemendafélags MR, þá sat hann við sérstakt borð með „ráðgjöfum“ sínum á árshátíð og útdeildi snittum til útvaldra. Björn Bjarnason langar bara í snitturnar og hann er að vinna fyrir þeim.
