Þá er ég skráður. Næsta haust verð ég bara í fjórum námskeiðum, reyndar 19 einingum í allt en samt bara fjögur námskeið. Ég mun fara í tvo innganga, að safnafræði og miðlun. Síðan mun ég rifja upp grunnpunkta félagsfræðinnar og þar að auki fara í hið sívinsæla fag Skjalastjórn.
Day: 22. mars, 2004
Survivor – Fótboltakallinn farinn
Jæja, fótboltakallinn er farinn. Ég á ekki eftir að sakna hans enda var hann afspyrnuleiðinlegur. Annars var þátturinn leiðinlegur að mestu, vona að það verði hrist almennilega upp í þessu í næstu viku.
Hvernig endaði kerran í Tjörninni
Hér fyrir neðan er að finna frábæra mynd mína af kerru í Reykjavíkurtjörn, einn lesandi var svo vænn að benda mér á hvernig kerran endaði þarna oní.
Maður bítur hund frétt
Stofnað var félag stúdenta sem eru fylgjandi skólagjöldum í síðustu viku, einhverjar fréttir voru fluttar af þessu enda er þetta klassísk „maður bítur hund“ frétt.
Persónuleikar Survivorkeppenda
Ásgeir er að skjóta, meðal annars líklega, á mig í nýjasta Survivorbloggi sínu. Hann er þar að tala kríp vs. fólk með góðan persónuleika.
Í fyrsta lagi finnst mér undarlegt hverja hann Ásgeir telur upp sem eigendur góðra persónuleika. Hann telur til; Big Tom, Ethan, Colby og Cathy. Alice fær aukaaðild að þessum klúbb.
- Big Tom er alveg að drepast úr kvenfyrirlitningu, hann sýndi það nokkrum sinnum þegar hann var að keppa og þá sérstaklega þegar hann var að greiða atkvæði. Hann leikur vissulega þennan góðláta sveitadurg en það er grunnt á ófétið.
- Ethan er bara vælukjói. Hann er í því að rembast til að gera öllum til geðs, passa sig að styggja ekki neinn. Hann hefði aldrei getað unnið í Afríku án aðstoðar Lex en eyddi tíma sínum í að baktala hann.
- Cathy þykjist alltaf lenda á milli hópa alveg óvart, hún er líklega skást af góðu persónuleikunum.
- Colby var einhver grimmasti keppandinn í Survivor. Hann plataði Jerry í Ástralíu á nastí hátt. Hann vissi vel að hún var hrifinn af honum, hann nýtti sér það eins lengi og hann gat en stakk hana í bakið þegar það hentaði honum.
- Alicia fær bara aukaaðild að klúbbnum hans Ásgeirs enda er hún í alvörunni almennileg. Líklega er hún of heiðarleg fyrir Ásgeir.
Rupert fær enga aðild að klúbbnum hans Ásgeirs af einhverjum undarlegum ástæðum, kannski útaf klúðrum sínum í keppninni. Mig er reyndar farið að gruna að áherslan á klúður Ruberts sé til þess gerð að við missum trúnna á hann þannig að það komi kannski á óvart þegar hann nær langt.
Krípin eru að mati Ásgeirs fólk einsog Rich, Lex og Rob. Þetta er fólk sem þorir að vera áberandi, þorir að taka áhættur og þorir að spila leikinn.
- Rich kom reyndar í þessa keppni án metnaðs, hann vissi að allir vildu sigra hann þannig að það var engin alvara í þessu hjá honum.
- Lex kom með djarfan leik síðast og breytti stöðunni algerlega. Frábært alveg, ef þetta fleytir honum á toppinn þá væri það verðskuldað.
- Boston Rob er svo montinn að hann mun aldrei komast á leiðarenda, hann heldur að hann stjórni keppninni. Grobb hans á eftir að gera fall hans skemmtilegt.
Málið er kannski fyrst og fremst að skemmtangildi þáttarins ræðst af hlutfalli góðu gæjanna og vondu gæjanna. Ef góðu gæjarnir eru of margir verður þátturinn bara hundleiðinlegur, getið þið ímyndað ykkur þátt sem væri fullur af Ethan týpum? Vá hvað það yrði leiðinlegt. Það er hins vegar aldrei leiðinlegt að hafa marga vonda gæja, þeir gera leikinn skemmtilegri.
Getið þið ímyndað ykkur síðustu seríu án Johnny Fairplay? Rubert var skemmtilegur góður gæji af því hann er svo óheftur, miklu skemmtilegri en þessir sem Ásgeir telur upp, en hann hefði ekki getað haldið uppi seríunni einn. Jon gerði síðustu seríu skemmtilega, án hans hefði maður ekki getað lifað sig jafn mikið inn í þetta. Það er kannski eitt sem vantar í þessa þáttaröð, almennilegt illmenni, einhvern sem maður getur hatað eða hlegið með. Boston Rob er næstur því að vera illmenni en hann er bara of heimskur til að spila það til enda.
Maður á líka aldrei að gleyma að þetta er leikur, fólkið er allt að leika að einhverju leyti, þetta er óraunveruleikasjónvarp. Ég held að við ættum að verðlauna skemmtilega fólkið með því að halda með þeim. Þeir sem ætla að fara í gegnum þetta með því að vera næs við alla eru að alveg jafn mikið að leika persónu einsog þeir sem Ásgeir stimplar kríp en þeir gera þetta bara á leiðinlegan hátt, þeir eru líka ekki djarfir keppendur, þeir fara öruggu leiðina.
Það er líka athyglivert að fylgjast með því hvernig góðu gæjarnir eru alveg jafn mikið í svikunum og krípin, þeir bara væla á meðan í von um að fólk sjái ekki í gegnum þá.
Geld mótmæli
Ég fór á mótmæli gegn skólagjöldum í Háskólanum, það var frekar léleg mæting, skipulagningin var léleg og aðalræðan var léleg. Bragi var nú reyndar ágætur en hún Jarþrúður virðist ekkert kunna að flytja ræður.
Hvernig er hægt að vanrækja það að redda allavega gjallarhorni? Ég skil það ekki. Síðan voru mótmælin illa kynnt, ég heyrði aðallega af þeim frá öðrum en Stúdentaráði. Til þess að hafa mótmælin fjölmennari þá hefði átt að hvetja framhaldsskólanemendur að mæta, það hefði líka verið viðeigandi þar sem þetta á náttúrulega eftir að koma meira í hausinn á þeim en okkur. MR-ingar hefðu til dæmis átt afar auðvelt með að rölta að Háskólanum.
Lélegt, lélegt.
Lærlingur galdramannsins
Í myndinni Fantasia er lítil saga um lærling galdramanns. Lærlingurinn, sem er leikinn af Mikka Mús, gefur sóp líf til að bera fyrir hann vatn. Innan skamms er sópurinn búinn að koma með alltof mikið vatn þannig að allt er að fara á flott. Mikki reynir að bjarga málunum með því að skemma/drepa sópinn. Þetta gengur ekki hjá honum vegna þess að flísarnar öðlast líf þannig að fleiri sópar myndast og þeir byrja allir að ná í vatn, vandræðin magnast bara upp.
Ég held að þetta geti virkað sem ágætis myndlíking um stöðuna í heiminum, sérstaklega eftir síðasta morð Ísraelsmanna. Ef þú drepur einn öfgamann, sér í lagi á þann hátt Ísraelar gerðu núna, þá leiðir það bara til þess að fleiri öfgamenn verða til.
