Lýðræði gegn þingræði

Ástæðan fyrir því að ég er ánægður með ákvörðun Ólafs Ragnars er fyrst og fremst sú að nú er hægt að líta á málskotsréttinn sem raunverulegan möguleika, í framtíðinni verða ríkisstjórnir að hugsa til málskotsréttsins þegar þær reyna að koma óvinsælum og umdeildum lögum í gegn, það er ekki lengur hægt að hunsa andstöðu almennings án þess að óttast eftirköst. Þó að ríkisstjórn hafi meirihluta á þingi þá þýðir það ekki að hún geti gert það sem hún vill í fjögur ár, hún þarf að taka tillit til almennings.

Hefði Ólafur frekar átt að nýta þennan rétt á öðrum tíma? Hugsanlega, en það segir ekkert um hvort hann hefði átt að gera þetta núna, þetta hlýtur ávallt að vera persónulegt mat forsetans.

Síðan er spurningin hvort að rétturinn til að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um lög ætti að vera hjá forsetanum eða hvort það ætti frekar að gerast þegar ákveðinn hluti þjóðarinnar krefst þess en það mikilvægasta í málinu er að þessi möguleiki sé fyrir hendi.

Til varnar Kalla Bjarna

Í nýjasta Séð & Heyrt er talað við unglingahóp sem kvartar yfir því að Kalli Bjarni Idol-stjarna hafi verið dónalegur við þau, hafi sýnt þeim miðputtann og neitað að gefa þeim eiginhandaráritun. Þau sögðust hafa stutt Kalla og kosið hann í keppninni.

Kalli Bjarni heldur á móti fram að unglingarnir hafi verið að hæðast að honum og að hann hafi verið reiður af því hann var þarna með konunni sinni og barni.

Í stuttu máli er augljóst að Kalli segir sannleikann og unglingarnir eru að ljúga, sérstaklega eru þau að ljúga varðandi það að hafa kosið hann í Idol-keppninni. Hvers vegna er ég viss um þetta? Af því að þessi unglingahópur var greinilega ekki í þannig tónlistarlegum pælingum að þau hefðu kosið Kalla Bjarna og raunar tel ég ólíklegt að þau hafi yfirhöfuð fylgst spennt með Idolkeppninni. Stelpan sem hafði orð fyrir hópnum var í Ozzy Osbourne bol og á myndinni sást líka einn strákur klæddur í Slipknotbol, öll voru þau greinilega alltof svöl fyrir Kalla Bjarna og því ákveðið að stríða honum.

Þessir unglingar áttu allt vont skilið frá honum Kalla, það að vera að angra hann fyrir framan konu og barn er bara dólgsháttur sem ekki ætti að líðast.

Hvað ætli þessir unglingar hafi fengið mikið borgað fyrir þetta „frétta“skot? Hvað borgar Séð & Heyrt fyrir lygar?