Fjölmiðlafrumvarpið drap einn fjölmiðil

Það hefur einhvern veginn gleymst í allra vitleysunni undanfarið að fjölmiðlafrumvarpið náði allavega að hafa áhrif á einn fjölmiðil, vefurinn Maddaman var drepin fyrir að vera ósammála. Það verður að teljast ósannfærandi að halda því fram að þessi bilun í hugbúnaði hafi náð að halda vefnum niðri í tvo mánuði.

Ekki það að ég sakni Maddömunar, hún var leiðinleg, ekki einu sinni nógu spennandi til að pirra mann. Kannski ætti maður bara að vera þakklátur fyrir þetta en mér finnst ákaflega skrýtið að framsóknarmenn skuli ekki átta sig á að það er eitthvað að flokksforystu sem slátrar vefriti fyrir að koma með smávægilega gagnrýni.

Samstaðan

Ég hjó eftir því að Guðni Ágústsson sagði að það væri samstaða um að hætta við fjölmiðlafrumvarpið, ég man ekki betur en að það opinberlega þá hafi verið samstaða um nákvæmlega hvert einasta skref í þessu bjánalega máli öllu. Mér dettur hér í hug annað ljóð og vona að Sverrir fari ekki að stela því af mér líka. Úr Stairway to Heaven:

cause you know sometimes words have no meaning

Það er kannski samt ekki beint orðin sem eru merkingarlaus heldur mennirnir sem eru marklausir.

Hvur fjandinn!

Haldiði að mér hafi ekki brugðið? Ég skrifaði síðustu færslu og kíkti síðan á yfirlitið yfir vefritin, fór síðan og skoðaði þessa grein: Frumvarpið sem hvarf. Sverrir hefur verið að lesa hugsanir mínar aftur.

Ekki með hvelli heldur stunu

Fjölmiðlafrumvarpsmálinu lokið, þessar ljóðlínur eru tileinkaðar ríkisstjórninni:

We are the hollow men
We are the stuffed men
Leaning together
Headpiece filled with straw. Alas!
Our dried voices, when
We whisper together
Are quiet and meaningless
As wind in dry grass
Or rats’ feet over broken glass
In our dry cellar

In this last of meeting places
We grope together
And avoid speech
Gathered on this beach of the tumid river

Sightless, unless
The eyes reappear
As the perpetual star
Multifoliate rose
Of death’s twilight kingdom
The hope only
Of empty men.

Síðan er gott að umorða niðurlag ljóðsins:

Þessu lýkur ekki með hvelli heldur stunu.

Internet Explorer er rusl

Ef þið vissuð það ekki þá er Internet Explorer rusl, hendið honum og farið á heimasíðu Opera til að komast inn í nútímann. Ef þið eruð hrædd um að þurfa að venjast nýjum vafra þá getið þið síðan farið á sérsniðarsíðuna þar sem hægt er að breyta útliti Opera þannig að hann minni á IE.

Það sem fékk mig til að fara í fýlu við IE í þetta skipti er að hann þolir greinilega ekki nema ákveðna lengd af slóðum, slóðin á Molana mína hér við hliðina var orðin of löng þannig að þeir birtust bara ekki. Helvítis kjaftæði. Ég er núna að vinna í því að taka út vefritin og ónauðssynlega hluta vefslóða. Þetta ætti að virka núna.