Svarið

Douglas Adams samdi um að skrifa Hitchhikers Guide útvarpsþættina þann 4. febrúar 1977, Eygló stingur upp á að 42 sé þaðan komið. Þetta er reyndar ófullkomin kenning þar sem ég er nokkuð viss um að Bretar snúa þessu öfugt (2/4 en ekki 4/2). Kenningin er samt í ætt við það sem ég hef haldið fram, s.s. að ég sé svarið (skeikar reyndar tveimur árum).

Hitchhiker bömmer

Við fórum á Hitchhiker núna í kvöld og ég er ekki glaður maður. Fáránlegar og óþarfar breytingar á bókinni, lélegt leikaraval og handrit sem sleppti fyndnustu línunum. Ég er nojaður.

Annars þá var Heiðar í bíóinu sem rifjaði upp fyrir mér að fyrir nærri níu árum vorum við á hugleikjamóti á Sauðárkróki og þar var verið að horfa á Hitchhiker þættina sem voru teknir upp af gervihnattastöð. Svarthvítt og snjókoma.