Douglas Adams samdi um að skrifa Hitchhikers Guide útvarpsþættina þann 4. febrúar 1977, Eygló stingur upp á að 42 sé þaðan komið. Þetta er reyndar ófullkomin kenning þar sem ég er nokkuð viss um að Bretar snúa þessu öfugt (2/4 en ekki 4/2). Kenningin er samt í ætt við það sem ég hef haldið fram, s.s. að ég sé svarið (skeikar reyndar tveimur árum).
6 thoughts on “Svarið”
Lokað er á athugasemdir.

Ég hef alltaf haldið að samhengið sé það að 42 sé einmitt 21 margfaldað með tveimur.
ó, ég hélt að það væri bara kaninn sem snéri tölunum svona öfugt. Ekkert smá ógagnsætt, farið fram og til baka með tímann (mánuður, dagur, ár, mögulega mínútur) Mér finnst 2005-05-10 langbesta leiðin.
Annars gæti dagsetningin einmitt verið trikk hjá Adams, ef hann var vanur að nota mánuður-dagur væri aðeins minna gegnsætt að snúa tölunum við.
p.s. Hér geturðu nálgast alla útvarpsþættina : http://hobbes.nmsu.edu/cgi-bin/h-browse?sh=1&dir=/pub/.arch-download/hhgttg
Spurningin var „Hvað færðu ef þú margfaldar 6 og 9?“ og svarið er „42“. Ef notuð er grunntalan 13 (fjöldi reita á hvorn kant í Scrabble) í stað 10 þá stenst þetta. 4*13=52 og þá fæst 52+2=54, sem er vissulega 6*9. Aðspurður að því af hverju hann gerði þetta svaraði Douglas Adams að það hefði bara enginn haft brandara með grunntölu 13.
Þarna held ég að þú sért á rangri leið Valdís, Adams afneitaði þessarri kenningu sérstaklega: „nobody writes jokes in base 13.“ og „I may be a pretty sad person, but I don’t make jokes in base 13.“
Hmmm… Greinilega misjafnt sem maður hefur heyrt haft eftir karlinum. Annars heyrði ég ekki alls fyrir löngu enn eina skýringuna á 42. Karlinn var að velta fyrir sér hvað svarið ætti að vera þegar hann lagaði sér te og varð litið á tedósina: Earl Gray, blend 42.