Hálfvitar í Harðviðarval

Ég get eiginlega ekki lýst fyrirlitningu minni á þjónustunni í Harðviðarvali. Maður hélt eiginlega að svona lítið fyrirtæki einsog Harðviðarval væri með betri þjónustu en Bykó og Húsasmiðjan, það var misskilningur. Þeir í Harðviðarvali eru ekki heldur með meira úrval, bara sama og á hinum stöðunum.

Ég keypti lista í gær, bað um að fá þá 17:30 en þeir komu ekki. Planið hafði verið að leggja listana að mestu í gærkvöldi, ég var búinn að fá fólk til að hjálpa mér en þar sem engir voru listarnir þá gat ég ekkert.

Ég fór í morgun í Harðviðarval og bað um að þeir yrðu sendir klukkan þrjú og þeir komu ekki. Ég fór áðan og þurfti að bíða heillengi áður en ég fékk aðstoð og sá var voðalega lítið hjálplegur, var aðallega að reyna að koma sökinni af sér.

Ef fyrirtæki gera mistök þá eiga starfsmennirnir ekki að vera benda á hvern annan heldur bara segja, „Fyrirgefðu, við reddum þessu.“ og helst bæta við „Á ég ekki að gefa þér afslátt?“
Ég var ekki beðinn afsökunnar á mistökunum og mér var ekki heldur boðinn afsláttur. Spurning hvort Harðviðarval geri tilraun til að rukka mig fyrir aksturinn. Þá fer ég og öskra. Ef ég hefði vitað að þeir væru óhæfir um jafn einfaldan hlut og að senda nokkra lista örfáa kílómetra þá hefði ég pantað bíl fyrir þetta sjálfur.

Ég á aldrei eftir að fara í Harðviðarval aftur (nema ef þeir klúðra einhverju í viðbót) og vona að sem fæstir geri það.

Vona að þetta sé nægilega leitarvélavæn færsla og mig grunar að hún sé.

Bíllinn kemur 18:30 á föstudag

Ég flyt á morgun, föstudag, og bíllinn kemur 18:30. Mig vantar endilega einhvern mannskap til að hjálpa mér. Þeir sem vilja vera með hafa bara samband við mig. Síðan verða pizzur frá Pizza 67 þegar dótið er komið.

Fréttablaðið í morgun

Hverjum er ekki sama þó Heimir Már Pétursson ætli kannski að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Og hvaða rugl er þetta með að Steingrímur Joð hafi verið með einhver afskipti af R-listamálum? R-listinn var löngu dauður þó einhverjir hafi viljað dröslað líkinu í framboð. Það kom kom reyndar fyrir í Bandaríkjunum einhverju sinni að dauður maður var kosinn á þing en hann gerði lítið af viti þar. Og Jón Gnarr, við vitum að þú ert ákaflega mikill aðdáandi Jesú, það hefur komið skýrt fram. Síðan er spurning um að spila smá diskótónlist fyrir Ella…