Um daginn var ég kallaður fórnarlamb Upplýsingarinnar. Sá sem kallaði mig það er fórnarlamb Rómantíkurinnar.
Annars er langt síðan ég hef verið kallaður pósitívisti. Það er leiðinlegt því það er eitthvað svo jákvætt við það.
Um daginn var ég kallaður fórnarlamb Upplýsingarinnar. Sá sem kallaði mig það er fórnarlamb Rómantíkurinnar.
Annars er langt síðan ég hef verið kallaður pósitívisti. Það er leiðinlegt því það er eitthvað svo jákvætt við það.
Þegar ég hugsa um stöðuna í Frakklandi kemur mér ósjálfrátt í hug óeirðirnar í Watts 1965. Þegar fólk er kúgað þá hlýtur að sjóða uppúr. Nú koma náttúrulega fávitar eins og Egill Helgason og segja að ég sé að afsaka skemmdarverkin og ofbeldið en að sjálfssögðu er slíkt bull og vitleysa. Besta leiðin til að koma í veg fyrir að svona gerist aftur er að skoða rætur vandans. Nær allir sem þekkja til segja að þetta hafi í raun verið ótrúlega lengi að koma upp á yfirborðið. Þetta var fyrirsjáanlegt og það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta.
Þetta er eins og þegar á að stimpla fólk illt. Hitler var illur, Stalín var illur. Það lærir enginn neitt á að setja svona merkimiða á fólk og ef við lærum ekki af mistökunum þá erum við dæmd til að endurtaka þau (klisjukennd lína en sönn).
Himmi nældi sér í fimm stig af tíu mögulegum. Ölli náði þremur og Tobbi tveimur.
Spennan í hámarki og lokaspurningin er barasta dáltið erfið.
1. Himmi er með þrjú stig.
2. Ölli er með þrjú stig.
3. Tobbi er með tvö stig.
Hvaða hljómsveit tók lagið Love of my Life á Freddie Mercury minningartónleikunum? Og hvaða lag þeirrar hljómsveitar kom í kjölfarið?
Tvö stig í boði!
Það er greinilega stemming fyrir keppninni. Himmi með félaga sínum Google skýst upp í annað sætið. Ölli er ennþá efstur með þrjú stig og Tobbi í þriðja með eitt.
Hér kemur fjórða spurningin:
Hvaða hljómsveit stofnaði Roger Taylor árið 1987 og hvaða lag söng Freddie Mercury á fyrstu plötu sveitarinnar?
Hverjir ná stigum?
Þetta er að verða líflegt. Ölli er með þrjú stig en Tobbi með eitt, þetta segir samt ekki alla söguna. Fólk hamast á reloadtakkanum.
Hér kemur spurning númer þrjú (í tveimur liðum):
Hvaða hljómsveit flutti lögin Blag og April Lady? Hver var bassaleikari hljómsveitarinnar?
Tvö stig í boði.
Ölli nældi sér í tvö stig með snöggu svari við fyrstu spurningunni. Nú bíða fjölmargir spenntir eftir spurningu númer tvö:
Hvar fæddist Freddie Mercury og hvert var upprunalegt nafn hans?
Sömu reglur og síðast. Svö í kommentakerfið takk fyrir.
Þar sem Stebbi hefur ákveðið að vera með einhverja orkuspurningakeppni með karllægan titil að launum þá mun ég halda keppni með spurningum um bestu rokkhljómsveit allra tíma. Ég læt 5 spurningar duga og munu þær smella inn yfir daginn. Fyrstur með svarið fær stigið.
Fyrsta spurning (létt og lipur):
Hvaða tvær myndir gerði Queen tónlist við (þá erum við ekki að telja eitt og eitt lag)?
Tvö stig í boði fyrir þann sem kemur með báðar myndir eða eitt fyrir að nefna aðra (þá getur einhver nælt sér í hitt stigið með að nefna myndina sem vantar). Hver má kom með eitt gisk um hvora mynd.
Vissuð þið að einungis helmingur þeirra sem eru í þjóðkirkjunni telja sig kristna?
Vissuð þið að prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands hefur orðið uppvís af því að spinna upp tölur til þess að láta einsog kristni sé algengari meðal Íslendinga en hans eigin könnun sýnir?
Vissuð þið að einungis um helmingur Íslendinga telur sig kristna?