Öðruvísi afmæli…

Í dag er afmælisdagurinn hennar mömmu. Hún hefði orðið 51 árs sem er stórfurðuleg tilhugsun. Ennþá skrýtnara, og sorglegra, er að báðar systur mínar eru eldri en mamma varð og ég á svo sem ekki langt í það. Á mínum aldrei var mamma búin að eignast þrjú börn.

Sándtrakk lífs míns…

Sándtrakk lífs míns. Bítlarnir eiga nokkur lög þa, allavega: Eleanor Rigby, You’ve got to hide your love away, Something, In my life, Across the Universe og The Long and winding Road.

Bowie er næstur á lista:
Ground Control to Major Tom
Your circuit’s dead, there’s something wrong
Can you hear me, Major Tom?
Þetta passar vel í frítt sms…

Skottulæknirinn sem talar við stofnfrumur

Ég myndi gera grín að DNA-heilaranum sem var í Kastljósi í gær en það eru allir búnir að því þannig að ég sleppi því. Ég hrósa hins vegar bæði Kastljósi og Fréttablaðinu fyrir að koma með vísindamann til að tala fyrir hönd raunveruleikans í þess að láta skottulækninn blaðra gagnrýnislaust. Það er ekki oft sem ég er ánægður með fjölmiðla í svona málum.

Að lokum getum við tekið nokkur erindi af hinu klassíska lagi „Er þetta mín eða þín stofnfruma?“