Ég myndi gera grín að DNA-heilaranum sem var í Kastljósi í gær en það eru allir búnir að því þannig að ég sleppi því. Ég hrósa hins vegar bæði Kastljósi og Fréttablaðinu fyrir að koma með vísindamann til að tala fyrir hönd raunveruleikans í þess að láta skottulækninn blaðra gagnrýnislaust. Það er ekki oft sem ég er ánægður með fjölmiðla í svona málum.
Að lokum getum við tekið nokkur erindi af hinu klassíska lagi „Er þetta mín eða þín stofnfruma?“
