Sund að morgni

Fyrir vinnu í morgun fórum við Eygló í sund.  Það var bara fínt.  Við syntum ekki langt í fyrstu atlögu en munum smá auka við okkur.  Við erum að spá í að gera þetta tvisvar til þrisvar í viku.

Að drepa mann

Gísli Freyr Valdórsson, sem starfar við æskulýðsstarf í Grafarvogskirkju, er með pistil á Íhald:

Að sögn Abu Musab Zarqawi hefur hann og ,,fylgjendur” hans drepið þúsundir íraskra borgara og hundruðir hermanna þeirra erlendu þjóða sem hafa eða hafa haft hermenn í Írak. Þeir hafa margoft lýst yfir ábyrgð á sprengingum sem drepið hafa meðal annars konur og börn og það er ekki að sjá að þeir skammist sín nokkuð fyrir slíkt  – jafnvel þó meirihluti fórnarlamba þeirra aðhyllist einnig hina ,,friðsömu” trú, islamstrú.

Það sem mér finnst athyglisvert við þetta er að í raun er hægt að yfirfæra þessa glæpi beint á George Bush og Tony Blair, fyrir utan þá augljósu staðreynd að menn á vegum Bush og Blair hafa drepið mun fleiri.

Þetta minnir mig á það þegar George Galloway var um daginn að tala um að honum finndist það að myrða Tony Blair vera á allt öðru stigi en að myrða almenna borgara í London.  Fólk hneykslaðist voðalega á þessu.  En samt virðist sama fólk ekki hneykslast sérstaklega mikið á Blair þegar hermenn undir hans stjórn drepa óbreytta borgara.  Samt var Galloway ekki að hvetja neinn til að drepa Blair, hann sagði að hann væri á móti því.

Ég veit ekki hvert ég er að fara með þessu, ég bara skil ekki hvernig hausinn á fólki virkar sem finnst allt í lagi að drepa fólk, sama hverjir það eru.  Heimurinn verður ekkert friðsamari við það að drepa einhvern mann sem hefur verið gerður að holdgervingi hins illa í fjölmiðlum.  Helsta vandamálið er að báðum megin í þessum átökum öllum er fólk sem telur sig vera á vegum hins góða og slíkt fólk er stórhættulegt.  Það er allt í lagi að reyna að gera góðverk en þegar maður heldur að maður megi brjóta þær grundvallarreglur sem við höfum í samfélagi okkar, ef fólk telur að það sé í lagi að blekkja, ljúga, meiða eða drepa fyrir málstaðinn þá er greinilegt að eitthvað er að.