Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 6. október 2006 klukkan 23:55

Kvöldmáltíðin

Gríðarlega skemmtilegur fagnaður hjá Vantrú. Greinilegt að umræður síðustu daga hefur hleypt miklum baráttuanda í hópinn. Gaman að því.  Ég fór reyndar þegar fólk var búið að safnast saman í reykloftinu. Nennti ekki að púkka upp á þetta reyklið.  Nóg að vera rétt að jafna sig á reykingum Dana.

Yndislegt kvöld alveg, þyrftum að gera þetta oftar.

Föstudagur, 6. október 2006 klukkan 17:04

Kominn heim

Jæja, ég er kominn heim frá Kaupmannahöfn.  Þreyttur.  Á leið á Vantrúarhitting á eftir þar sem menn verða væntanlega glaðir yfir athyglinni þó sjálfur sé ég bitur yfir óheiðarleikanum.

Ferðasaga kemur seinna.  En þetta var ótrúlega gaman.