Ég veit ekki hvort að margir viðskiptamenn myndu þola það að farið væri í gegnum hvert einasta smáatriði reikninga þeirra án þess að það finnist neitt almennilegt ákæruefni. Þegar ég las að hluti af ákærupakkanum væri eitthvað rugl um hvort einhverjir Bítladiskar hefðu verið keyptir í eigin þágu eða í þágu fyrirtækisins þá áttaði ég mig á að þessi málatilbúnaður væri djók. Þetta er í mesta lagi innanhússmál en ekki eitthvað fyrir ríkið að eltast við. Verst að þessi brandari hefur verið á kostnað skattborgarana. Næsta rannsóknarefni ætti að sjálfssögðu að vera hvers vegna öllum þessum peningum var sóað í vitleysu.
Day: 3. maí, 2007
Að deila tónlist
Það er svo gaman þegar maður er búinn að skrifa upp viðtal, þá getur maður skipt um gír og hlustað á tónlist. Áðan togaði ég samt óvart heyrnatólin mín úr sambandi og spilaði ljúfa tóna Pet Shop Boys fullhátt. Ég flýtti mér að setja í samband aftur og leit vandræðalegur í kringum mig. Stúlkurnar sem deila rýminu með mér tóku ekki eftir neinu enda báðar í eigin heyrnatólaheimi. Þeir sem eru hérna fyrir utan á þriðju hæðinni hafa hins vegar kannski orðið svolítið undrandi…
Eyrnakerti
Þegar þetta mál kom upp þá þurfti töluverða umræðu á Vantrúarspjallinu til að komast að þeirri niðurstöðu að þetta væri ekki brandari og að það væri til fólk sem væri nógu heimskt til að trúa þessu.
