Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 5. mars 2008 klukkan 16:23

Myndskilaboð - Drífa

Drífa var ekki að fara í sama vagn og ég þannig að við spjölluðum ekkert saman.

Image006.jpg

Miðvikudagur, 5. mars 2008 klukkan 13:41

Vímuefnaruglsblogg?

Um for-Moggabloggsblogg segir Moggabloggarinn:

Maður hafði líka sterklega á tilfinningunni að hann væri mikið mengaður af vímuefnarugli. Þetta voru bar-rónar mestan part og ölþambarar en samt af fínni sortinni.

Þetta er svolítið spes.

Miðvikudagur, 5. mars 2008 klukkan 11:07

Ekki hneykslaður

Eftir að hafa skoðað skopmyndirnar í Íslam með afslætti verð ég að segja að ég er ekki hneykslaður. Kannski af því að þetta er sett fram til að hneyksla og því áhrifaminna eða af því að South Park hefur í gegnum tíðina gengið mun lengra. Ég er líka mjög lélegur í að móðgast fyrir hönd Íslendinga.

Miðvikudagur, 5. mars 2008 klukkan 8:29

Játning

Ég er ekki pólýryþmískur.