Er ekki tímabært að spila Bombsweeper? Eða Donkey Kong II? Jafnvel Donkey Kong Jr?
Day: 10. mars, 2008
Yfirferðin
Ég er loksins að yfirfara skilgreiningakaflann minn sem ég fékk frá Terry fyrir nokkru. Það er merkilegt að honum fannst ekki vera mikið sem þurfti að breyta en mér finnst þetta heill hellingur, allt að 20 athugasemdir á síðu. Reyndar eru þetta oft sömu athugasemdirnar varðandi framsetningu þannig að í raun eru þær ekki svo margar.
Ég hef samt ekki óhóflegar áhyggjur þar sem ég hef séð yfirferð Terry á texta sem honum fannst þurfa að breyta mikið á og þar var svarta blekið ekkert sérstaklega áberandi á bak við það rauða.
En ég er búinn að senda honum næsta kafla og bíð spenntur eftir að fá hann útkrotaðann á fimmtudaginn kemur.
Póstmodernismahvarfið mikla
Þeir sem halda að lítið sem ekkert hafi borið á póstmodernisma í andlegu lífi Íslendinga síðasta áratug ættu kannski að taka sig til og lesa eitthvað meira en Staksteina og Reykjavíkurbréf.
