Í gær fékk ég símtal frá RÚV. Ég var glaður þegar ég heyrði „Við erum að hafa samband við alla frambjóðendur…“ – og vonaði þá að RÚV ætlaði nú að slá DV einhvern veginn við – en varð fyrir vonbrigðum þegar kom í ljós að þetta var auglýsingadeildin. Þannig að RÚV hefur afrekað það eitt að vísa á tilraunir annarra til að kynna frambjóðendur og núna að reyna að græða á kosningunum. Það er ekki til fyrirmyndar. Ætlar RÚV í alvörunni að bregðast svona illilega?
Þið vitið líka af póstinum frá Mogganum um daginn þar sem mér var boðið að kaupa fokdýrar auglýsingar sem ég myndi sjálfur ekki einu sinni sjá.
Day: 11. nóvember, 2010
Gagnrýni DV-stjórnlagaþingsprófið
Ég hef séð gagnrýni á DV-stjórnlagaþingsprófið frá ýmsum frambjóðendum. Það er vissulega alveg rétt að maður getur ekki treyst niðurstöðum þess blindandi en ég tel engar líkur á að fólk geri það. Ég sem minna þekktur frambjóðandi sé þarna frábært tækifæri til þess að kjósendur geti valið að skoða upplýsingar um mig á öðrum forsendum en þeim að þeir sjái nafnið mitt eða mynd. Ef þeir smella geta þeir væntanlega fljótlega komist að því hvort ég sé góður kostur eða ekki. Allavega er þarna eitthvað tækifæri sem var ekki fyrir. DV er hiklaust sá fjölmiðill sem er að sigra kosningabaráttuna.
Svörin til kirkjunnar
Þó ég sé vissulega á því að það sé ekki við hæfi að Þjóðkirkjan skipti sér af kosningabaráttunni með því að gera könnun til að útbúa lyfseðil þá ákvað ég að senda svör. Fyrir ágætis gagnrýni á þetta má benda á pistilinn hans Braga Skaftasonar frambjóðanda um málið.
Ég íhugaði að nota tækifærið til að nöldra yfir óheiðarlegum málflutningi presta varðandi skólatrúboð en ég ákvað að halda mig við efnið.
Mitt svar var svona:
Sæll Árni,
Hér eru svörin mín – ég leyfi öðrum að nöldra yfir þessu 😉1. Telur þú þörf á að breyta þessari grein? Ef svo er hvernig?Ég tel mikla þörf á að breyta 62. gr. stjórnarskrárinnar.
Mín tillaga er að hún hljómi svo:
Íslenska ríkið skal gæta hlutleysis í trúmálum. Öll trú- og lífskoðunarfélög skulu njóta jafnræðis að lögum.2. Hver er afstaða þín til núverandi sambands ríkis og þjóðkirkju?Ég tel að ríkiskirkjufyrirkomulagið sé andstætt trúfrelsi á sama hátt ríkisflokkur væri andstæður stjórnmálafrelsi. Í raun eru þeir sem standa utan Þjóðkirkjunnar annars flokks borgarar. Sem betur fer eru ekki bara langflestir landsmenn sammála mér að aðskilja beri ríki og kirkju heldur langflestir meðlimir Þjóðkirkjunnar.
Ég hef aldrei séð hvernig ríkiskirkjufyrirkomulagið getur samrýmst því sem Jesús frá Nasaret kennir samkvæmt guðspjöllum Nýja testamentisins. Ég get ekki betur séð en þetta ójafnrétti ætti að vera honum þvert um geð. Ég ætti líka að vera nokkuð vel að mér í þessum fræðum eftir að hafa lært um Nýja testamentið í Guðfræðideild Háskóla Íslands.
Þeir sem vilja kynna sér viðhorf mínar geta gert það á https://truflun.net/oligneisti/
kv.Óli
