Svörin til kirkjunnar

Þó ég sé vissulega á því að það sé ekki við hæfi að Þjóðkirkjan skipti sér af kosningabaráttunni með því að gera könnun til að útbúa lyfseðil þá ákvað ég að senda svör. Fyrir ágætis gagnrýni á þetta má benda á pistilinn hans Braga Skaftasonar frambjóðanda um málið.

Ég íhugaði að nota tækifærið til að nöldra yfir óheiðarlegum málflutningi presta varðandi skólatrúboð en ég ákvað að halda mig við efnið.

Mitt svar var svona:

Sæll Árni,
Hér eru svörin mín – ég leyfi öðrum að nöldra yfir þessu 😉

1. Telur þú þörf á að breyta þessari grein? Ef svo er hvernig?

Ég tel mikla þörf á að breyta 62. gr. stjórnarskrárinnar.

Mín tillaga er að hún hljómi svo:
Íslenska ríkið skal gæta hlutleysis í trúmálum. Öll trú- og lífskoðunarfélög skulu njóta jafnræðis að lögum.

2. Hver er afstaða þín til núverandi sambands ríkis og þjóðkirkju?

Ég tel að ríkiskirkjufyrirkomulagið sé andstætt trúfrelsi á sama hátt ríkisflokkur væri andstæður stjórnmálafrelsi. Í raun eru þeir sem standa utan Þjóðkirkjunnar annars flokks borgarar. Sem betur fer eru ekki bara langflestir landsmenn sammála mér að aðskilja beri ríki og kirkju heldur langflestir meðlimir Þjóðkirkjunnar.

Ég hef aldrei séð hvernig ríkiskirkjufyrirkomulagið getur samrýmst því sem Jesús frá Nasaret kennir samkvæmt guðspjöllum Nýja testamentisins. Ég get ekki betur séð en þetta ójafnrétti ætti að vera honum þvert um geð. Ég ætti líka að vera nokkuð vel að mér í þessum fræðum eftir að hafa lært um Nýja testamentið í Guðfræðideild Háskóla Íslands.

Þeir sem vilja kynna sér viðhorf mínar geta gert það á https://truflun.net/oligneisti/
kv.

Óli