Ég veit að sú umræða er að mestu búin, en þessi mynd finnst mér fyndin. Takið eftir hvernig þau eru fótósjoppuð inn á myndina!
Day: 3. júlí, 2004
108888156346996601
Hvað er eiginlega málið með bloggara samtímans? Eintómir letibloggarar, eins og fólk hafi eitthvað betra að gera en að blogga! Verandi gamall í hettunni (og nostalgíufíkill) upplifði ég gullöld bloggsins á Íslandi. Kannski ætti að kenna þessum nýgræðingum að heyja bloggstríð?
108885747323695547
Senn líður að því að ég þurfi að mæta til vinnu, hvar ég mun þjóna hungruðum og fátækum, hlæjandi meðan ég tæmi rýrar buddur þeirra ofan í kassa peninga, svo gróðamaskína hins volduga Jóhannesar geti haldið áfram gangi sínum, féflettandi æ fleiri sálir með hverjum líðandi degi.
Í raun og veru er vinnan mín reyndar ekki svona dramatísk. Þvert á móti er hún viðburðalaus og mannskemmandi. Og þó er ég ekki að kvarta.
108885673662204259
Hvers vegna telur mogginn það frétt að einhvurjir auðkýfingar séu að brölta um á Íslandi (að ég tali ekki um veislumáltíðina sem „bíður þeirra“)?
Hvað er svo málið með þetta? Það er ekki eins og einhver raunveruleg hernaðarleyndarmál leynist á Keflavíkurflugvelli.
Fréttin í gær um norsku rollurnar er svo í svipuðum dúr og þessi hérna.