109593926692034652

Ef það vantaði skilgreiningu á að kasta steini úr glerhúsi, þá væri þetta hún. Hvenær ætli Zimbabwe hlotnist annars heiðurstitillinn Múgabía?
Þetta er ekki ný frétt. Það er heldur ekkert nýtt að skoðanakannanir Fréttablaðsins stangist á við raunveruleikann.
Morgunblaðið sýnir sinn rétta lit í dag; ekki mega kjósendur Sjálfstæðisflokksins tefjast í umferðinni meðan fólk deyr úti á þjóðvegunum. Miklu brýnna er að bæta almennar samgöngur um landið áður en Reykjavík verður ein stór mislæg gatnamót.
Af hverju eru forsetakosningar Bandaríkjanna alltaf svona mikill skrípaleikur? Hverjum er ekki skítsama hvað Kerry og Bush staðhæfa hvor um annan ef það tengist ekki málefnunum? Þessi frétt hefði allt eins getað heitið „Kerry segir Bush hafa lítið typpi“ og könunum þætti það vel ígrunduð athugun byggð á málefnalegum grundvelli. Ekki skil ég hvernig fólk sættir sig við svona kjaftæði frá mönnum sem vilja ráða yfir landinu þeirra. Og ég veit nákvæmlega hvernig Bush mun svara þessum ásökunum: Kerry segir mig lifa í draumaheimi. En það er Kerry sem bætir sér upp fyrir vanhæfni sína með draumórum um hetjuskap í Víetnam. Um það snúast kosningarnar: Hvor þeirra kandídata var meiri soldát fyrir tæpum fjörutíu árum.
Málsháttur dagsins: Eigi þarf satt vera, þó tveir mæli fyrir.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *