Þetta hefur verið dagur mikillar bloggtíðni. Enda hef ég setið nær allan daginn fyrir framan tölvuna og þóst stunda mikilvægar rannsóknir fyrir pönkuðustu málfræðiritgerð allra tíma. Eða þannig.
Day: 15. nóvember, 2004
110054841073172319
Þetta finnst mér ógnvænlegt. Þetta ofsóknarbrjálæði gæti verið vísir að enn stærra máli.
Stjörnuspáin:
SPORÐDREKI 23. október – 21. nóvember
Þú skellir skollaeyrum við hverjum þeim er reynir að draga úr þér kjark og standa í vegi fyrir þér í dag. Þú ert til í að taka áhættu og finnur til dirfsku og ævintýrarþrár í dag.
Mér fannst ég allavega finna fyrir mikilli dirfsku og ævintýraþrá þegar ég lagði mig fyrr í dag.
110053237053337061
Old Dirty Bastard, hver lézt sl. laugardag, átti þrettán börn. Það kom mér ekki á óvart. Ekki spyrja hvers vegna.
Fréttablaðið tekur ummælum Pauls McCartney sem hrósi, þegar hann sagði að einhver íslenzk hljómsveit gæti endurgert lag hans „Let’s do it in the Road“, sem „Let’s do it in the Fjord“. Ef þetta er ekki augljóst diss þá veit ég ekki hvað.
Hlutir sem mér finnst merkilegir
110052934210452602
Æi, ég birti þetta bara:
Take the quiz: „Which American City Are You?“
Seattle
Your dark exterior masks a caffeine driven activism. You’ll take up a cause and you’ll get ugly to advance it.
110052710145925901
Þetta er ekki satt. Meirihluti þjóðar er alltaf hærra en 50%. Rétt skal vera rétt.
Og nú fáum við Skúli að sjá hvor hefur rétt fyrir sér, en félagi Patronus heldur því fram að upp komi svipuð staða og á bannárunum í Bandaríkjunum. Ég get ekki tekið undir það og nú verður spennandi að fylgjast með tóbaksbanni Bhútan. Bhútan verður fordæmið til að fara eða fara ekki eftir.