Stefán býður fram

Ég sá á Vísi að Stefán Jón er farinn að auglýsa framboð sitt í prófkjöri Samfylkingarinnar með heilsíðuauglýsingum í prentmiðlum. Ekki ímynda ég mér að það geri honum neitt gott. Hríðlækkar ekki alltaf fylgi Samfylkingarinnar þegar hann birtist í fjölmiðlum? Í það minnsta á ég bágt með að ímynda mér annað.

Hitt er þó aftur annað mál, að ef ég ætti að velja milli borgarstjóraefnanna Stefáns Jóns og Gísla Marteins … Nei annars, ég held ég myndi frekar flytja til Síberíu.

5 thoughts on “Stefán býður fram”

  1. Þakka báðum. Skrýtin þessi MT veröld, eftir að hafa vanið sig á viðvaningsdraslið hjá Blogger.
    Annars var ég, Harpa, að hugsa um að sverta upp nýja bloggið líka. Ég er hins vegar farinn að venjast þessu svona svo það eru litlar líkur á endurupptöku gamla litarins.

  2. Nei, þetta mun líklegast ekki enda neitt sérlega vel, hvorugur kosturinn er góður. Síbería hljómar bara ágætlega.
    Til hamingju með nýjan stað, þetta er gott krú!

Lokað er á athugasemdir.