Að sama skapi gremst mér ýmislegt sem komst til framkvæmda og hefði betur verið sleppt. Undanfarið hefur mér fundist fleira komast verri veginn en þann betri, þ.e. til framkvæmda fremur en helvítis, meðan andlegur kroppur minn liggur iðralaus óbættur í valnum og hrafnar illvirkjanna kroppa úr mér það sem eftir lifir af hugsjónum mínum líkt og augun úr ná. Við þessu er ekkert að gera.
Áreiðanlega hlæja skálkar fortíðarinnar í gröfinni, vitandi að málagjöld hlaut ég makleg fyrir að gleðjast yfir óförum þeirra. Við hittumst í helvíti hugsjónanna, og það er öðrum helvítum verra. Sinnuleysingjarnir hafa sjálfa sig dæmt fyrir að láta allt yfir sig ganga. Við hin verðum gráhærð um tvítugt. Kannski er betra að hugsa ekki sjálfstætt.
NEI!!!! o_O
EKKI leyfa öðrum að hugsa fyrir þig!!! Það er blákalt morð eins og það gerist verst!
Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það fólk sem telur sig þurfa að hugsa fyrir alla aðra… -Við höfum öll heila, ekki satt?
Þetta snerist ekki um hvort ég ætlaði að hugsa sjálfstætt, heldur hvort ég telji þá betur setta sem það gera eða þá sem gera það ekki.