Leit auga þitt nokkuð fegra?

Já, Tómas, en mikið helvíti komstu nærri því. Ljóð dagsins, Í vesturbænum, úr bókinni Fagra Veröld, er tileinkað öllum þeim dögum sem eru fegurri en þessi.

Það kvað vera fallegt í Kína.
Keisarans hallir skína
hvítar við safírsænum.
En er nokkuð yndislegra
– leit auga þitt nokkuð fegra –
en vorkvöld í vesturbænum?

Því þá kemur sólin og sezt þar.
Hún sígur vestar og vestar
um öldurnar gulli ofnar.
Og andvarinn hægir á sér.
Ástfangin jörðin fer hjá sér,
unz hún snýr undan og sofnar.

Hér gnæfir hin gotneska kirkja.
Hér ganga skáldin og yrkja
ástaljóð úti við sæinn.
Og ungir elskendur mætast,
óskir hjartnanna rætast,
er húmið hnígur á bæinn.

– Tómas Guðmundsson.

3 thoughts on “Leit auga þitt nokkuð fegra?”

  1. ég fann líka bloggið þitt. það er rosa gaman að lesa sögur af kringlusafninu þó það sé engin um hæfileikaríka uppraðarann sem starfaði þar eitt sinn. humm. ég sakna þó gömlu vinnunnar en læt mér lynda að búa til og selja dýrt og bragðvont kaffi.

  2. Því máttu trúa að þín er sárt saknað, bækurnar raða sér víst ekki sjálfar, og síðan þú fórst er ég ekki frá því að Dewey-kerfið hafi vikið fyrir óreiðunni. En maður lítur kannski við á gamla Mokka og fær sér einn kaffibolla.
    Emil, hvenær ætlarðu að láta verða af því að dæla af lýrík þinni yfir Skúla? Það má vel bæta nokkrum fleygum orðum við þessa tilvitnun ef þú heldur þig ekki á mottunni.

Lokað er á athugasemdir.