Ég sé það núna að Hótel jörð er ekki merkilegt kvæði. Vinsamlega færið síðuhaldara betri ljóð í athugasemdum meðan hann spókar sig utan skrifstofunnar.
Ég sé það núna að Hótel jörð er ekki merkilegt kvæði. Vinsamlega færið síðuhaldara betri ljóð í athugasemdum meðan hann spókar sig utan skrifstofunnar.
Þetta hefur alltaf virkað fyrir mig.
Ah, ah – nú sofna eg,
fyrst svona er dauðahljótt;
svo hitti eg í draumi,
drottninguna, í nótt.
Svo gef eg henni svarta slæðu
að sveipa um líkamann,
svo enginn geti séð,
að eg svívirti hann.
Svo rjóða eg á brjóst hennar
úr blóði mínu kross,
og kyssi hana í Jesúnafni
Júdasarkoss.
Þá gef eg henni kórónu
úr klaka á höfuð sér.
Hún skal fá að dansa
eins og drottningu ber.
Svo gef eg henni helskó,
hitaða á rist,
og bind um hvíta hálsinn
bleikan þyrnikvist.
Svo dönsum við og dönsum
og drekkum eitrað vín.
… Eg verð konungur djöflanna,
hún drottningin mín
Davíð Stefánsson
Sæll Arngrímur. Ég ætla bara að segja að þessi ferð hafi bara tekist vel. Mér fannst leðinlegt að þú komst ekki . Ég veit að það er voðalega mikið að gera hjá þér enn mig lágar samt að hitta þig meira vonandi skylur þú það. Alla reyndu að vera í sambandi við . Því ég get ekki hryngt í þig það er bara ókungir sem svara alltaf.Vonandi hefur þú skemmt þér vel í partýunum.
Æ æ æ mér finnst Hótel Jörð leiðinlegt kvæði og lagið við það alveg skelfilegt. Mér verður eitthvað svo kalt í hjartanu þegar ég heyri það. Svona eins og það sé blautt í fæturnar að bíða eftir strætó í roki og rigningu!
Lagið er öllu verra en ljóðið finnst mér, reyndar alveg gjörsamlega hræðileg smíð. En þar til nýlega var ég hrifinn af ljóðinu.
Takk fyrir ljóðið Stefán Bogi. Hvernig er það, ætla engir fleiri að setja inn sín?