Um helgina verður haustþing Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit. Meðal annarra verðum við frændsystkinin Þórunn Hrefna með erindi þar og að sjálfsögðu hvet ég alla lesendur Bloggsins um veginn til að koma þangað. Þingið verður ræst á laugardagsmorgun og stendur fram á sunnudag.
Dagskrána má finna hér. Erindið mitt set ég inná síðuna við tækifæri nema það verði birt annarsstaðar, en þá vísa ég þangað.
Tregawöttin vilja erindið þitt.
Ég verð á kafi í börnum og Sigrún í vinnunni svo ég óska þér bara góðrar framistöðu! 🙂
Wöttin fá það á mánudag.