Ég hef ákveðið að orðræðu- og innihaldsgreina nokkrar vinsælar myndasögur nákvæmlega. Hér eru niðurstöðurnar hingað til. Þær eru hafnar yfir vísindalegan vafa: nákvæmlega svona eru allar sögur hvers myndasöguflokks (92% vikmörk). Smellið á myndirnar til að stækka.
Grettir: Jón á kött sem borðar, sérstaklega það sem hann á ekki að borða.
Ívar grimmi / Hrólfur hræðilegi: Víkingur vill drekka og herja, en hann á konu sem vill að hann sinni húsverkum.
Pondus: Ógeðslegir gaurar að gera ógeðslega hluti meðan þeir horfa á fótbolta og drekka bjór.
Gelgjan / Zits: Unglingar eru leiðinlegar gelgjur.
Ljóska: Dagur er latur og Ljóska er ekki hrifin af því.
Greiningin á Pondus er ekki nógu djúp. Allar fótboltavísanir þar eru í algjörlega obscure neðrideildarlið. Annars nokkuð spot on.
Hef ekki lesið hann í einhver ár, svo þetta er eftir minni. Er ekki talsverð karlremba í honum líka? Það vantar þá eiginlega að gaurinn í fyrsta rammanum æpi að konur séu ömurlegar.
Það vantar eiginlega frekar ramma þar sem ógeðslegur gaur reynir við ógeðslega konu á bar.
Aha, auðvitað.
G+oðir brandarar hjá þér og skemmtilegar myndumyndyrnar líka.