Mikið svaf ég vel í nótt, aldrei þessu vant. Var hálfvegis búinn að gleyma því hvernig það er að sofa án þess að vakna upp á klukkutíma fresti.
Fékk tölvuskeyti áðan frá bankanum sem í stóð að nýja kreditkortið mitt væri komið. Það er brjálað sjitt.
Eins gott að svefninn er kominn í lagið, enda ekki til hættulegri maður en sá syfjaði með kreditkortið.