Lyfjakokteill og læknisheimsókn

Fór á Læknavaktina áðan. Læknirinn dáðist af “Davíð í herinn og herinn burt” merkinu mínu. Hann úrskurðaði að ég væri með pest sem er að ganga, sumir hafa víst fengið hana svona harkalega einsog ég. Ég er líka með bónus sem er eyrnabólga í öðru eyra. Það var ógeðslega sárt þega ég vaknaði með það í nótt, veinaði næstum. Ég fékk lyfseðil upp á sýklalyf og leiðbeiningar um að taka íbúfen og parkódín við eyrnaverknum.

Nú er bara að vona að ég verði hress á mánudag, ömurleg vika sem þetta hefur verið.