Að kjósa um framtíð Arnolds

Hugsanlega fá kjósendur í Californiu tækifæri til að kjósa hann Arnold vin okkur úr kvikmyndum. Kosningabaráttan ætti að fara fram milli þeirra sem fíla Arnold og eru því á móti því að hann verði ríkisstjóri og hins vegar þeirra sem þola hann ekki sem leikara og ætla því að kjósa hann. Jamm.

Ég get hins vegar ekki skilið að fólk geti talað sífellt um að hann sé að bjóða sig fram í embætti ríkisstjóra en í kjölfarið talað um fylkið Californiu. Ef maður verður ríkisstjóri yfir fylki þá er eitthvað að. Mér finnst því nauðsynlegt að benda fólki enn og aftur á að það eru engin fylki í Bandaríkjunum, ef svo væri þá væru þetta Bandafylkin og Arnold væri þá á leið í kosningabaráttu um fylkisstjóraembætti.