Heimsóknir

Skruppum áðan til Óla frænda og reyndum að koma tölvupóstinum hans í lag, enduðum með að skrá hann á nýtt. Stoppuðum ekki neitt meira því við þurftum að fara í búðina.

Núna rétt áðan fórum við síðan til Ásgeirs og völdum hvaða húsgögn við viljum hirða meðan hann verður kennari á Sauðárkróki, reyndum líka að sjá út hvernig íbúðin okkar er. Virðist vera þægilega afgirtur garður bak við hjá okkur en ekki svalir. Skoðuðum líka þvottavélakerfið og geymslurnar svo ekkert kemur okkur á óvart þegar við flytjum inn. Vantar líklega gluggatjöld.