Badmintonskjálftinn

Ég er með badmintonskjálfta, sá það sérstaklega vel áðan þegar ég var að fá mér kakó. Höndin með duftinu skalf og ég þorði ekki að bæta mjólkinni við með þeirri hendi. Íþróttameiðslin eru að fara með mig en ég stend við þetta, ég hef markmið.