Merkilegt að ég hef verið í svona viku að rembast í þessari helvítis ritgerð og núna á fjórum klukkutímum hef ég náð 1000 orðum til viðbóta þeim 200 sem ég var kominn með.
Aðferðafræðiprófið er í öðru sæti hjá mér enda er þar um að ræða 10% próf í hæsta lagi (0% í minnsta lagi) á meðan ritgerðin er 40% og þar að auki verkefni í Internetinu sem gilda meira (eitt sem ég skilaði þessari viku, eitt í næstu). Ég tók annars smá tíma í að kenna Eygló tölfræði, reyndar þurfti ég fyrst að hringja til Hjörvars til að fá smá upprifjun í þessu. Eygló komst í ægilegt stuð eftir þetta er með einhverjar ástarjátningar til handa Hjörvari (og mér reyndar líka).
Annars þá finnst mér einna erfiðast að ná orðaforðanum í tölfræðinni því hann er allt annar en var notaður í þeirri bók sem ég notaði í framhaldsskóla. Ég minntist á þetta við Hjörvar og hann sagði mér að þetta væri nú jafnvel verra en ég héldi þar sem Félagsvísindadeild og Náttúruvísindadeild notuðu ekki sömu orðin. Þetta er ótrúlega heimskulegt, hve auðvelt væri fyrir háskólann að búa til samræmdan orðaforða fyrir tölfræði og skella því á netið með orðunum á ensku og hugsanlega samheitum sem notuð hafa verið?
Ég væri alveg til að hafa kennslubókina sem ég hafði í tölfræði í framhaldsskóla því hún var nú betri í að kenna manni reikninginn heldur en þessi fallega og dýra enska bók sem við keyptum. Bah! Kannski að það verði mikið flóknari atriði útskýrð þegar á líður en einsog er þá er þessi tölfræði bara endurtekning fyrir mér. Ég passaði mig líka á því að taka tölfræði í framhaldsskóla en ég hefði alveg getað sleppt því. Ég hefði hins vegar ekki getað sleppt því að læra um annars stigs jöfnur og flatarmálsfræði (eða rúmfræði) þó ég hafi verið á félagsfræðibraut. Heimskulegt, heimskulegt kerfi.