Mikil er upphefð mín

Ef allt fer fram sem horfir þá verð ég ekki einungis skorarfulltrúi fyrsta árs nema í bókasafns- og upplýsingafræði heldur fer ég líka á deildarfundi fyrir hönd nemenda í skorinni. Ég hef gaman af svona hlutum. Veit svosem ekki hvað hlutverk mitt verður á deildarfundum frekar en ég vissi hvert hlutverk mitt yrði á skorarfundum áður en ég mætti þangað.