Besta bíó á Íslandi

Ég er að horfa á Mósaík og það var verið að fjalla um Bæjarbíó í Hafnarfirði. Bíóið virðist vera að eflast allverulega og er nú með tvær sýningar í viku sem aðeins kostar 500 krónur inn á. Ég skil ekki hvernig þetta góða starf hefur náð að felast svona vel. Ég á án efa eftir að nýta mér þetta.

Gamla heimasíðan hefur ekki verið uppfærð sem er slæmt en dagskráin er samt á netinu.