Ég var í Odda áðan með Eygló. Við vorum að rölta niður stigann og sáum þar stelpu og strák sem voru búin að koma sér fyrir á miðri leið, á miðjum stiga til þess að spjalla. Það var rétt hægt að komast sitt hvorum megin við þetta fólk. Ég gekk þeim megin sem stelpan var og reyndi hvað ég gat að rekast nógu harkalega í hana svo hún myndi sulla kaffinu sínu yfir félaga sinn en því miður tókst það ekki. Ég þoli ekki svona fólk sem er skítsama þó það sé fyrir öllum, það ætti að fleygja því fyrir ljónin (eða allavega að hella kaffi yfir það).
