Geturðu sett upp Windows XP fyrir mig?

Þetta hljómaði einsog einföld beiðni frá honum Ásgeiri: “Geturðu sett upp Windows XP fyrir mig?” Jújú, tekur smá tíma en hvað gerir maður ekki fyrir vini sína.

Hvað ef beiðnin hefði upphaflega hljómað: “Geturðu sett upp Windows XP fyrir mig? Og tengja disklingadrifið? Og tengja geislaadrifið? Og síðan redda öðru geisladrifi af því bæði geisladrifin mín eru biluð? Og bjarga gögnum af gamla harða disknum mínum?”
Ég hefði allavega ekki verið jafn fljótur að segja já.

Mér sýnist þetta hins vegar hafa gengið nema að það eru þarna einhverjar snúrur sem mig grunar að eigi að vera tengdar einhvers staðar, fáðu einhvern annan til að tengja þær. Síðan vantar þig geisladrif, reddaðu þér nýju skilaðu mínu til mín, fáðu síðan einhvern annan til að tengja nýja drifið. Ég fleygði síðan gamla my documents yfir á nýja harða diskinn, gamli diskurinn virðist reyndar virka einsog er en maður veit aldrei hvort það endist. Og ég er mörgum skrúfum fátækari.

Annars þá náði ég í kvöld að sanna fyrir Eygló að það er eitthvað gagn í að hafa bláskjá í geymslunni og líka allar þessar snúrur og skrúfur.

**PS**
Vertu síðan glaður að ég bjó ekki til nastí notendanafn á þig né svívirðileg heiti á hörðu diskana, ég er bara of indæll þó ég hafi næstum því freistast til þess.