Gáfulegur Óli

Myndaveseninu fer bráðum að ljúka, við eigum bara eftir að fara yfir allra nýjustu myndirnar, síðan getum við látið “framkalla” flottustu myndirnar sem hafa verið teknar síðan 1. maí. Fyrsti maí er valinn af handahófi, við ætlum að prufa þjónustuna áður en við við látum framkalla alveg allt sem við eigum af stafrænum myndum.

Ég rakst síðan á mynd sem er ögn gáfulegri heldur en “hesta”myndin sem hefur verið undanfarið og ákvað skella henni þarna.