Ný aukagrein og BA pælingar

Ég er kominn á þá skoðun að ég ætti að skipta um aukagrein, gefa skít í safnafræði og fara yfir í þjóðfræði. Safnafræðin er ekki að standa undir væntingum, námskeiðið er illa skipulagt og ég held að það sé miklu leyti miðað við það að þetta verði mastersnám í framtíðinni.

Ég var síðan að renna yfir þetta í gær og sá að ef ég byrja á BA-verkefninu á næstu önn þá ætti ég að geta rúllað þessu upp og útskrifast í febrúar 2006. Ég verð búinn með allt í bókasafns- og upplýsingafræði næsta vor, 61 einingu í allt. Þjóðfræðin er þægileg að því leyti að allt sem ég ætla að taka þar eru fimm eininga áfangar, þannig að ég þarf bara fimm áfanga þaðan (get notað Inngang að Safnafræði í þeim pakka). Ég tek 16 einingar á næstu önn, 15 á þarnæstu og get vonandi líka notað árið í BA-verkefnið.

Þá er eitt óleyst mál og það er: Hvað verður BA-verkefnið mitt? Ég hef skoðað nokkra möguleika í þessu og hef ekki komist að neinni niðurstöðu. Ég hef reyndar ákveðið að ég ætla ekki að skrifa ritgerð enda gengur mér mun betur að koma mér að verki þegar um verkefni er að ræða, maður þarf ekki að bíða eftir að andinn komi yfir mann heldur bara vinna. Þá er líka vandamálið að finna sér leiðbeinandi og svo framvegis…

Og þeir sem stungu upp á því fyrr í haust að ég ætti að fara í þjóðfræði mega glotta.