Fálkaverðlaunin eru bjánalega, þetta vita allir. Förum aðeins yfir listann:
- Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross, fyrir framlag til nýsköpunar á sviði tónlistar Hver er þetta?
- Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, prestur, Kópavogi, riddarakross, fyrir störf í þágu trúar og kirkju – Kommon! Hvenær fæ eg verðlaun fyrir störf i þagu truleysis? Eg er ekki einu sinni að fa borgað fyrir min störf.
- Birgir D. Sveinsson, kennari, Mosfellsbæ, riddarakross, fyrir störf í þágu tónlistar Hver er þetta?
- Björgólfur Guðmundsson, athafnamaður, Reykjavík, riddarakross, fyrir framlag til viðskiptalífs og menningar Okei, hann hefur væntanlega latið eitthvað af peningunum sem rikið gaf honum til menningarstarfs, agætt hja honum en verðlaunavert?
- Edda Heiðrún Backman, leikkona, Reykjavík, riddarakross, fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar Hvað hefur hun gert meira en hver annar? Eg veit það ekki
- Eiríkur Smith, listmálari, Hafnarfirði, riddarakross, fyrir myndlistarstörf Takk fyrir allt maleriið
- Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, Akureyri, riddarakross, fyrir störf í þágu sveitarstjórna og byggðamála Æl, æl, æl. Fair menn vekja með mer jafn mikla anduð og Kristjan Þor.
- María Th. Jónsdóttir, formaður Félags aðstandenda Alzheimerssjúkra, Garðabæ, riddarakross, fyrir störf í þágu velferðar og málefna minnissjúkra Eg þekki ekki til hennar en þetta hljomar nokkuð verðugt.
- Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, Reykjavík, stórriddarakross, fyrir störf í opinbera þágu Klapp, klapp, þu ert buinn að vinna þa vinnu sem þu færd borgað fyrir.
- Már Sigurðsson, ferðamálafrömuður, Haukadal, riddarakross, fyrir frumkvæði í uppbyggingu ferðaþjónustu Va, brilljant
- Ragnar Bjarnason, söngvari, Reykjavík, riddarakross, fyrir framlag til íslenskrar tónlistar Fyrir að syngja svona lengi, er það nog til að fa verðlaun?
- Sigurður Björnsson, yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross, fyrir störf í þágu krabbameinslækninga Vissulega eru þetta „vinnuverðlaun“ en verðugt
- Sigurveig Guðmundsdóttir, fv. kennari, Hafnarfirði, riddarakross, fyrir störf í þágu mennta- og félagsmála Enga hugmynd.
- Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra, Eyjafirði, stórriddarakross, fyrir störf í opinbera þágu Ælælælæl.
- Dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor, Reykjavík, riddarakross, fyrir vísindastörf Veit ekkert.
- Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri, Siglufirði, riddarakross, fyrir framlag til uppbyggingar Síldarminjasafnsins Skilst að hann hafi unnið þetta vel.
Sumt af þessu hljomar alveg einsog „Liftime achivement“ verðlaun, ætti þetta ekki að vera Edduverðlaun? Eg horfði a annallinn i gær, þar var folk sem hafði bjargað mannslifum, af hverju er það folk ekki a þessum lista? Þetta er hræðilegt kjaftæði.
